logo

Nýtt upphaf
Rýnihópar eru frábær leið til að kortleggja nýjar aðstæður.
Nálgun MMR á rýnihópinn byggir á þekkingu, rannsóknarfólks í bland
við áherslu á þróun og trausta aðferðafræði.
Meira


MMR í fjölmiðlum
MMR framkvæmir reglulega kannanir um ýmis samfélagsmál sem eru birtar í fjölmiðlum.

Smelltu hér til að skoða fréttaumfjöllun um birtar kannanir.

Umfjöllun í fjölmiðlum

 

Spurningavagn MMR

Spurningavagn MMR er framkvæmdur mánaðarlega.
Vagninn er áreiðanleg og hagkvæm leið til gagnaöflunar.
Nánari upplýsingar veita ráðgjafar MMR í síma 578 5600 eða
í tölvupósti á info@mmr.is

Framkvæmd

Úrtak
Spurningalisti er sendur á netpanel MMR (álitsgjafa MMR) sem byggir á tilviljanakenndu úrtaki úr þjóðskrá. Svarendur eru á aldrinum 18-67 ára og hafa aðgang að Internetinu.
Hver könnun samanstendur af 800 svörum. Val á svarendum (netpanel)
fer fram í gegnum síma en könnuninni sjálfri er svarað á Internetinu.

Um svarhlutfall
Svarhlutfall í könnunum með netpanel getur verið mjög hátt (allt að 70-80%).
Það ber hins vegar að hafa í huga að þegar svarhlutfall er reiknað þá miðast það eingöngu við þá þátttakendur sem könnunin er send á en ekki þá sem hafa
afþakkað þátttöku með einum eða öðrum hætti (neitað að taka þátt til að byrja
með eða hætt þátttöku eftir einhvern tíma). Þess í stað styðst MMR við kvótaúrtak
eins og viðurkennt er í panelrannsóknum. Við gerð kvótaúrtaksins er þess er gætt í fyrsta lagi að panellinn sem slíkur endurspegli þýðið (í þessu tilfelli þjóðskrá) með
tilliti til lýðfræðilegra þátta (s.s. kyns, aldurs og búsetu) og í öðru lagi að
þátttakendur í hverri könnun endurspegli þessi sömu lýðfræðilegu hlutföll.

Bakgrunnsupplýsingar
Við greiningu á svörum fylgja með krosskeyrslur eftir stöðluðum lýðfræðibreytum
(kyn, aldur, búseta, starf, menntun og heimilistekjur). Mögulegt er að óska eftir
öðrum bakgrunnsupplýsingum.

Skýrslugerð
Skýrslugerð er hagað í samræmi við óskir viðskiptavina. Innifalið í grunnverði eru krosskeyrslur í töflum, brotnar eftir stöðluðum bakgrunnsbreytum ásamt einfaldri grafískri framsetningu. Niðurstöðum er skilað á rafrænu formi (PDF).

Tímaáætlun
Gagnaöflun hefst jafnan fyrsta mánudag hvers mánaðar og varir frá mánudegi til mánudags. Skil á grunnúrvinnslu eru á miðvikudegi þar á eftir (þ.e. tveim dögum
eftir að gangaöflun lýkur). Síðustu skil á spurningum í vagninn er klukkan 10:00
að morgni föstudagsins áður en gagnaöflun hefst.