MMR // Markaðsrannsóknir, Þjónusturannsóknir, Spurningavagn, Vinnustaðagreining

lausnir_spurningavagn_bordi

Spurningavagn MMR er framkvæmdur mánaðarlega. Vagninn er áreiðanleg og hagkvæm leið til gagnaöflunar. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar MMR í síma 578 5600 eða í tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Framkvæmd

Úrtak

Spurningavagninn byggir á tilviljanakenndu úrtaki úr þjóðskrá. Svarendur eru á aldrinum 18-67 ára og hafa aðgang að Internetinu.
Hver könnun samanstendur af 800 svörum. Val á svarendum (netpanel) fer fram í gegnum síma en könnuninni sjálfri er svarað á Internetinu.

Um svarhlutfall

Svarhlutfall í könnunum með netpanel getur verið mjög hátt (allt að 70-80%). Það ber hins vegar að hafa í huga að þegar svarhlutfall er reiknað þá miðast það eingöngu við þá þátttakendur sem könnunin er send á en ekki þá sem hafa afþakkað þátttöku með einum eða öðrum hætti (neitað að taka þátt í panelnum til að byrja með eða hætt þátttöku í honum eftir einhvern tíma). Þess í stað styðst MMR við kvótaúrtak eins og viðurkennt er í panelrannsóknum. Við gerð kvótaúrtaksins er þess gætt í fyrsta lagi að panellinn sem slíkur endurspegli þýðið (í þessu tilfelli þjóðskrá) með tilliti til lýðfræðilegra þátta (s.s. kyns, aldurs og búsetu) og í öðru lagi að
þátttakendur í hverri könnun endurspegli þessi sömu lýðfræðilegu hlutföll.

Bakgrunnsupplýsingar

Við greiningu á svörum fylgja með krosskeyrslur eftir stöðluðum lýðfræðibreytum (kyn, aldur, búseta, starf, menntun og heimilistekjur). Mögulegt er að óska eftir öðrum bakgrunnsupplýsingum.

Skýrslugerð

Skýrslugerð er hagað í samræmi við óskir viðskiptavina. Innifalið í grunnverði eru krosskeyrslur í töflum, brotnar eftir stöðluðum bakgrunnsbreytum ásamt einfaldri grafískri framsetningu. Niðurstöðum er skilað á rafrænu formi (PDF).

Tímaáætlun

Gagnaöflun hefst jafnan fyrsta mánudag hvers mánaðar og varir frá mánudegi til mánudags. Skil á grunnúrvinnslu eru á miðvikudegi þar á eftir (þ.e. tveim dögum eftir að gangaöflun lýkur). Síðustu skil á spurningum í vagninn er klukkan 10:00
að morgni föstudagsins áður en gagnaöflun hefst.

Opinber birting niðurstaðna

Óheimilt er að birta niðurstöður kannana opinberlega nema með skriflegu leyfi MMR. Ef niðurstöður eru birtar skal nafn þess sem greiðir fyrir viðkomandi könnun tekið fram ásamt því sem niðurstöður viðkomandi spurningar skulu gerðar opinberar í heild sinni, þar með talið þær forsendur sem svarendum eru gefnar áður en spurninginni er svarað. MMR áskilur sér jafnframt rétt til að gera ofangreindar upplýsingar opinberar við birtingu niðurstaðna af hálfu kaupanda.

 
Þú ert hér  : Heim Spurningavagn
Markaðs og miðlarannsóknir ehf
Laugavegi 174
105 Reykjavík
Sími 578 5600
Fax 578 5619
members-mark