Eigindlegar aðferðir (qualitative)
Það að skilja þarfir, viðhorf og tilfinningar
neytenda er ekki síður mikilvægt en að
mæla
og meta áhrif þeirra. Þess
vegna eru eigindlegar (qualitative)
rannsóknaraðferðir mikilvægur
liður í þjónustuframboði MMR.
Hvort sem um ræðir stök eigindleg verkefni eða samþættingu eigindlegra og megindlegra aðferða, þá bjóðum við lausnir sem henta smæstu sem og stærstu úrlausnarverkefnum.
Aðferðir
EM
EM er heildstæð lausn MMR við samþættingu
eigindlegara og meginlegra rannsóknaraðferða.
Rýnihópar
Rýnihópurinn byggir á samræðum
6-10 einstaklinga undir stjórn
umræðustjórnanda. Aðferðin hentar sérstaklega þegar
umræðuefnið krefst þess
að hugmyndum sé varpað á milli fólks.
Djúpviðtöl
Einstaklingsviðtöl sem fara fram samkvæmt umræðuramma
eða í frjálsu flæði. Aðferðin hentar t.d.
sérlega vel þegar umræðuefnið er af viðkvæmum
toga, ef erfitt er að ná tilteknum hópi viðmælenda
saman á sama tíma eða ef rannsóknarefnið krefst þess
að greining eigi sér stað milli viðtala.

