Rýnihópar
Nálgun MMR á rýnihópinn byggir á þekkingu, sköpunarkrafti og hugvitssemi rannsóknarfólks í bland við áherslu á þróun og trausta aðferðafræði.
Af hverju rýnihópar?
Rýnihópar eru öflugt verkfæri til að greina
og skýra þá merkingu sem neytendur
leggja í umhverfi
sitt. Með rýnihópum má nálgast svör
við aðkallandi spurningum
eins og hvaða breytingar eru að eiga
sér stað í neytendahegðun eða hvaða nýju
þarfir
eru að verða til.
Algengar spurningar sem svarað er í rýnihópum
eru til dæmis:
•
skilningur á orðaforða eða orðfæri viðskiptavina
•
hvaðan er ímynd fyrirtækja og vörumerkja komin
•
mati á viðbrögðum við nýjum auglýsinga-
og/eða markaðsherferðum
•
kortlagning á ástæðum fyrir kauphegðun
•
greining á fyrirsjáanlegum og orðnum breytingum á hegðun
og tísku
Hvernig eru niðurstöður rýnihópa unnar?
Niðurstöðum rýnihópanna er skilað í skýrslu þar
sem leitast er við að setja niðurstöðurnar upp á myndrænan
og aðgengilegan hátt. Þeim rannsóknarspurningum
sem lágu til grundvallar rannsókninni er svarað og studdar
með tilvitnun í orð þátttakenda. Einnig er
gerð grein fyrir nýjum hugmyndum og nýrri sýn
sem getur gagnast fyrirtækinu og þannig aukið gildi niðurstaðnanna.

