Netkannanir MMR
Netkannanir MMR gera fyrirtækjum og stofnunum mögulegt að fá upplýsingar
um vilja neytenda á skömmum tíma og með þægilegri
hætti fyrir svarendur betur en hefðbundnar símakannanir.
Internetnotkun
á Íslandi er með því mesta sem þekkist
í heiminum. Ísland
er því kjörvettvangur fyrir
gagnaöflun með netkönnunum - sem auk þess að vera
mjög áreiðanlegar
eru mun hagkvæmari en hefðbundnar rannsóknaraðferðir.
Aðferðafræði framtíðarinnar
MMR er í fararbroddi fyrirtækja sem nýta sér
möguleika Internetsins við framkvæmd markaðsrannsókna. Á það jafnt
við hvort heldur sem litið er til megindlegra eða eiginlegra
rannsókna. MMR hefur frá árinu 2006 unnið kerfisbundið að uppbyggingu
hópa (Álitsgjafa MMR) sem taka þátt í könnunum á netinu
og nálgast svarendahópurinn nú fyrsta tugþúsundið
og fer stöðugt vaxandi.
Að nota Internetið til gagnaöflunar hefur marga kosti umfram
hefðbundnar aðferðir:
Fljótari svörun
Fræðilega séð er mögulegt
að taka úrtak og ljúka gagnaöflun á nokkrum
klukkutímum.
Fleiri úrtaksmöguleikar
Mögulegt er að velja úrtak út
frá mun fleiri þáttum en bara lýðfræðilegum,
sem þýðir að úrtakið endurspeglar betur þarfir
viðskiptavina.
Á forsendum þátttakenda
Svarendur
taka þátt þegar þeir
vilja og þeim hentar.
Vandaðri svörun
Svarendur gefa skýrari og betur hugsuð svör
við eigindlegum/opnum
spurningum en tíðkast í t.d. símakönnunum.
Fleiri spurningaform og nýmiðlun
Hægt er að spyrja
mun flóknari spurninga en gert er í hefðbundum
könnunum auk þess sem mögulegt er að birta myndir af
vörum, auglýsingum o.fl. sem færir svarandann nær þeim
raunveruleika sem rannsókninni er ætlað að endurspegla.
Möguleiki á „trade-off“ æfingum
Mikilvægur
eiginleiki netkannana er að þar er hægt að beita svo
kölluðum „trade-off“ æfingum þar
sem líkt
er eftir raunverulegri kauphegðun (þ.e. vali á vörum
eða þjónustu). Þessar æfingar eru nauðsynlegar
til að skilja hvaða eiginleikum vöru og þjónustu fólk
sækist eftir. Trade-off æfingar
eru svo gott sem ótækar með hefðbundnum gagnaöflunarleiðum.

