lausnir_voruthroun_bordi

Hvort er betra að nota kassa eða poka, rör eða stút, grænt eða blátt?

Vöruþróun MMR® samanstendur af safni fjölbreyttra aðferða, eins og skynprófunum, ákvarðanatökulíkönum, augnhreyfimælingum og djúpviðtölum sem raðað er saman í þeim tilgangi að spá fyrir um móttökur tiltekinnar vöru eða þjónustu.

Ólík sjónahorn, ólík markmið

Á sama tíma og kaupendur vilja alla eftirsóknarverðustu eigineika vöru á sem lægstu verði þá vilja seljendur hámarka arð, annað hvort með því að lágmarka framleiðslukostnað eða bjóða vörur sem fela í sér meira virði fyrir neytendur en samkeppnisaðilinn. Til að sætta þessi ósamrýmanlegu markmið þá þurfa báðir aðilar að gera málamiðlanir til að viðskipti geti átt sér stað.
Spurningin er þá hvaða málamiðlarnir þarf að gera? Hlutverk vöruþróunar MMR® er að finna hvar þessi ólíku markmið skarast og hvernig seljendur geta raðað saman vöru- og/eða þjónustuframboði þannig að lykilþarfir kaupenda séu uppfylltar um leið og framleiðslukostnaði er haldið í lágmarki.

Ástæður vöruþróunar

  • Framleiðslukostnaður er of hár, hvernig lækkum við kostnað án þess að tapa hlutfallslegri sölu?
  • Hvenær eru verðhækkanir réttlætanlegar?
  • Hvernig höfða mismunandi eiginleikar til ólíkra neysluhópa og hvernig röðum við eiginleikum saman?
  • Er tækifæri til að höfða til neytenda með vöru sem ekki er fyrir á markaði?
  • Hver er besta mögulega samsetning á nýrri vöru?
  • Hvernig svara ég breyttri vörusamsetningu samkeppnisaðila?
  • Hvers virði er vörumerkið mitt með tilliti til þeirra eiginleika sem samkeppnisvörurnar hafa?

Vöruþróun MMR® felur í sér svör við þessum lykilspurningum hvort sem markmiðið er að kynna nýja vöru eða bæta núverandi vöruframboð.

 

Framleiðslukostnaður er of hár …
hvernig lækkum við kostnað án þess að tapa hlutfallslegri sölu?
Við þurfum að hækka verð – styður vörumerkið hækkun?
Hvernig höfða mismumandi eiginleikar til mismunandi neysluhópa?
Eru tækifæri til að höfða til neytenda með vöru sem ekki er fyrir á markaði?
üHver er besta mögulega samsetning á nýrri vöru?
Hvernig svara ég breyttri vörusamsetningu samkeppnisaðila?
Hvers virði er vörumerkið mitt?
Þú ert hérHeim Lausnir Vöruþróun MMR®
Markaðs og miðlarannsóknir ehf
Ármúla 32
108 Reykjavík
Sími/Tel: +354 578 5600

ESOMAR corporate2013 RGB w170