MMR // Markaðsrannsóknir, Þjónusturannsóknir, Spurningavagn, Vinnustaðagreining

MMR® Brand (vörumerkjarannsóknir)

lausnir_mmrbrand_bordi

MMR® Brand er heiti á aðferðafræði sem felst í að tengja ímyndargögn beint við vörumerkjavild og skilgreina þannig þær vogarstangir sem vörumerkjaeigendur geta notað til að hafa áhrif á forgangsröðun neytenda á vörumerkjum. MMR® Brand tekur þannig hefðbundnar lýsandi vörumerkjamælingar og gerir úr þeim upplýsingar sem nýtast með beinum hætti við stjórnun vörumerkja.

Mögulegt er að nota MMR® Brand á öll vörumerkjagögn svo lengi sem þau fela í sér mat einstaklinga á einu eða fleiri vörumerkjum með tilliti til þeirra ímyndarþátta sem skilgreina vörumerkið, auk mælinga á virði viðkomandi vörumerkja.

Tilgangur
MMR® Brand er hannað til að svara lykilspurningum um mörkun:

Hvaða ástæður nota neytendur til að velja á milli vörumerkja?

Vandamálið er að ímyndargögn skarast yfirleitt verulega, því margar þeirra spurninga sem notaðar eru sem mælikvarðar á ímynd eru oft nátengdar. Fyrsta skrefið er því að fækka þessum ímyndaratriðum niður í færri, tölfræðilega óskilda, mælikvarða sem segja okkur jafnframt hvaða megin þemu það eru sem skýra ólíka sýn neytenda á ólík vörumerki.

Hve mikilvægir eru ímyndarþættirnir?
Þetta er spurning sem hefðbundin lýsandi tölfræði getur ekki svarað. MMR® Brand gerir okkur aftur á móti kleift að skoða tengsl milli einstakra ímyndarvídda og þess virðis sem neytendur sjá í tilteknum vörumerkjum. Þannig greinum við þá ímyndarþætti sem virkilega skipta neytendur máli þegar þeir gera upp á milli vörumerkja.

Hvaða einkunn fá vörumerkin á þessum ímyndarþáttum?
Mögulegt er að reikna frammistöðu einstakra vörumerkja á ímyndarþáttum, rétt eins og gert er fyrir venjulegar spurningar í spurningalista. Þannig fáum við mun einfaldari og skýrari mynd af upplifun neytenda af vörumerkjum.

Hver eru sóknarfæri/ógnanir tiltekinna vörumerkja?

Þegar ímyndarvíddir hafa verið einangraðar og flokkaðar eftir mikilvægi getum við áætlað hvaða ábata tiltekin vörumerki geta vænst af breyttum áherslum í ímyndarstarfi. Einnig er hægt að greina hve mikinn skaða vörumerkið getur hlotið af því að slaka á stuðningi við aðrar ímyndarvíddir.
Það er ekki sjálfgefið að þau atriði sem teljast mikilvægust þarfnist mestrar athygli. Áherslur þurfa að taka tillit til núverandi ímyndarstöðu vörumerkisins og þeirra áþreifanlegu tækifæra sem vörumerki hafa til að styrkja tilteknar ímyndarvíddir.
MMR® Brand tekur tillit til þessara þátta þegar áhrif áherslubreytinga í ímyndarstarfi á styrk vörumerkja eru metin.

 

Lykilorð: Ímyndarrannsókn, vörumerkjarannsókn, ímyndarmæling

 
Þú ert hér  : Heim Lausnir MMR® Brand
Markaðs og miðlarannsóknir ehf
Laugavegi 174
105 Reykjavík
Sími 578 5600
Fax 578 5619
members-mark