|
Hlutverk auglýsinga er að örva neytendur, skapa eftirvæntingu, veita upplýsingar og hvetja til þátttöku. En hvernig vitum við hvernig þessum markmiðum er náð? MMR er brautryðjandi í auglýsingarannsóknum og kynnir með stolti aðferðafræði og tækni sem veitir auglýsendum í fyrsta skipti upplýsingar um hvernig markaðsefni raunverulega nær og stýrir athygli. Allar tegundir markaðs og kynningarefnis Auglýsingamat MMR® nær til alls sjónræns auglýsinga- og kynningarefnis (s.s. umbúðahönnunar, markpósts, bæklinga, hilluframsetninga, prent- og sjónvarpsauglýsinga) og hefur það að meginmarkmiði að:• markaðsefni nái og viðhaldi athygli • hönnun markaðsefnis beini athygli í réttar áttir • neytendur skilji markaðsefni eins og til er ætlast • hámarka nýtingu plássins sem keypt er undir markaðsefnið (hvort sem það er í framstillingum eða fjölmiðlum) Við mælum nákvæmlega sjónræn og tilfinningaleg viðbrögð við markaðsefni og metum þannig líkur á að skilaboð komist til skila. Niðurstaðan felur í sér skilmerkilega ráðgjöf um hönnunarúrbætur. LÁS í stað TTS Hingað til hafa auglýsingar verið metnar út frá því hve margir hafa tækifæri til að sjá þær (TTS) en nú getum við reiknað nákvæmar líkur fyrir því að auglýsingin raunverulega sjáist (LÁS). Vönduð aðferðafræði og hátækni
|