Lausnir
Við leggjum höfuðáherslu á snjallar lausnir við greiningu gagna
og notum predictive analytics til að skoða söguleg gögn og spá fyrir um
líklega hegðun neytenda í framtíðinni.
Þannig höfum við t.d. hjálpað fyrirtækjum
að hanna auglýsingar sem ná betri árangri, bætt úr nýtingu markpóstsendinga
og stuðlað að aukinni sölu
með bættri vöruþróun.
Við virkjum upplýsingar
Auglýsingarannsóknir
Hlutverk auglýsinga er að örva neytendur, skapa eftirvæntingu,
veita upplýsingar og hvetja til þátttöku. En hvernig vitum við hvernig þessum
markmiðum er náð?
Við mælum nákvæmlega sjónræn og tilfinningaleg
viðbrögð við auglýsingum og veitum jafnframt ráðgjöf um úrbætur í auglýsingahönnun
og metum líkur á að skilaboð komist til skila.
Gæði þjónustu
Framsækin fyrirtæki gera sér í auknu
mæli grein fyrir þeim tækifærum sem felast í þjónustustjórnun.
Greining þeirra þjónustuþátta sem skipta
viðskiptavininn mestu máli er grundvöllur markvissrar stjórnunar á þjónustu.
Þjónustulausnir MMR svara því eftirfarandi lykil spurningum:
Hverju búast viðskiptavinir við af mér?
Hvernig er ég raunverulega að standa mig?
Hvaða þjónustustig eru mikilvægust í huga
viðskiptavina minna?
- Er ég að sinna þeim þjónustustigum?
Hvernig á forgangsröðun þjónustuúrbóta
að vera háttað - nákvæmlega?
Markaðshlutun
Við reiknum út hvaða áhrifavaldar það
eru sem skipa fólki í mismunandi neytendahópa og hjálpum í kjölfarið
við
að innleiða
ferla
sem hjálpa
fyrirtækjum að haga samskiptum sínum við neytendur til samræmis.
Til dæmis nýtum við innri upplýsingar
úr fyrirtækjum til að spá fyrir um vilja neytenda til að þiggja tilboð
um tiltekna
vöru eða þjónustu. Í kjölfarið verða samskipti við neytendur markvissari,
markaðskostnaður lækkar og arðsemi eykst.
(Vöru)merkjavirði
Við höfum mikla reynslu af rannsóknum sem miða að því að skilja
það sérstaka samband sem ríkir milli vörumerkja og neytenda.
Vörumerkjatryggð
er minni en áður og neytendur krefjast meira. Þeir eru meðvitaðri um gildin
og viðskiptasiðferðið sem býr að baki vörumerkjum
og hafa um þau meiri efasemdir en áður. Tímabil fjöldamarkaðssetningar
er liðið og við bjóðum lausnir sem taka mið af þessum aðstæðum.
Vöruþróun
Hvort er betra að nota kassa eða poka, rör eða
stút, grænt eða blátt? Við beytum fjölbreyttum aðferðum s.s. augnhreyfimælingum,
rýnihópum, skynprófunum og ákvarðanatökulíkönum til að spá fyrir um móttökur
tiltekinnar vöru eða þjónustu.
Hvort sem markmiðið er að kynna nýja vöru eða bæta núverandi vöruframboð
þá bjóðum við lausnir á öllum stigum.
Verðlagning
Hvernig hugsa neytendur um verð? Gerir 100 króna
lækkun sama gagn og 10% afsláttur? Hvers virði er Síminn í hugum neytenda
samanborið við Vodafone? Hvað þarf verðið á Pepsi að vera svo það seljist
frekar en Coke? Við beitum þróuðum tölfræðilíkönum til að svara þessum
spurningum og fleiri.

