| Dregur úr trausti til stjórnarandstöðunnar |
|
| Miðvikudagur, 26. október 2011 11:10 | |||
|
Þeim fjölgar sem bera mikið traust til Landsvirkjunar en 34,2% sögðust bera mikið traust til hennar nú, borið saman við 24,7% í október 2010 sem er 39% aukning. Traust til Landsvirkjunar er því að nálgast það traust sem fyrirtækið hafði í desember 2008 og skipar sér þar með á bekk fárra stofnana sem njóta mikils trausts hjá fleirum en segjast bera lítið traust til þeirra.
Traust til ríkisútvarpsins, Háskólans í Reykjavík og Alþjóðagaldeyrissjóðsins eykst einnig nokkuð milli mælinga. Þeim fjölgar sem sögðust bera mikið traust til ríkisútvarpsins úr 52,1% í október 2010 í 59,7% nú. Fjöldi þeirra sem sagðist bera mikið traust til Alþjóðagjaldeyrisjóðsins fór úr 6,8% í október 2010 í 11,9%. Þá fjölgar þeim einnig sem sögðust bera mikið traust til Háskólans í Reykjavík, var 48,9% fyrir ári síðan en var nú 52,9%. Sem fyrr trónir lögreglan í efsta sæti yfir þær stofnanir sem fólk segist bera mikið traust til, en 81,3% þeirra sem tóku afstöðu kváðust bera mikið traust til hennar. Þrátt fyrir bætingu milli mælinga situr bankakerfið sem fyrr á botninum en 5,9% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til þess.
Niðurstöðurnar í heild:
|