| Fáir segjast bera traust til Landsdóms |
|
| Þriðjudagur, 25. október 2011 11:36 | |||
|
Athyglisvert er að bera þessa niðurstöðu saman við eldri kannananir MMR á trausti til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómstóla. Landhelgisgæslan nýtur áfram afgerandi trausts en töluvert dregur úr fjölda þeirra sem sögðust bera traust til Sérstaks saksóknara, voru 59,8% í febrúar á þessu ári en eru nú 47,4%. Einnig dregur nokkuð úr trausti til Ríkislögreglustjóra, í febrúar sögðust 55,1% bera frekar eða mjög mikið traust til hans borið saman við 44,8% nú. Helstu breytingar frá mælingu MMR í febrúar á þessu ári voru þær að þeim fækkar sem sögðust treysta Héraðsdómstólunum og Ríkissaksóknara. Þá sögðust 39,3% bera frekar eða mjög mikið traust til Héraðsdómstólanna borið saman við 34,4% nú og 38,4% sögðust bera traust til Ríkissaksóknara þá borið saman við 32,9% nú. Breytingar á trausti til annarra stofnana mældust innan vikmarka. Þróun milli mælinga:
Niðurstöðurnar í heild:
|