| Dómstólar taki upp Guðmundar- og Geirfinnsmál |
|
| Miðvikudagur, 19. október 2011 09:05 | |||
|
Afstaða breytist nokkuð eftir hópum Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á afstöðu fólks til þess hversu sammála eða ósammála það var endurupptöku dómstóla á svonefndu Guðmundar- og Geirfinnsmáli. Af þeim sem tóku afstöðu voru fleiri konur en karlar sammála því að taka ætti málið upp aftur eða 84,3% kvenna borið saman við 79,8% karla. Þeim sem voru sammála endurupptöku málsins fækkar með hækkandi aldri. Þannig voru 87,0% yngsta aldurshópsins (18 – 29 ára) frekar eða mjög sammála því að taka aftur upp Guðmundar- og Geirfinnsmálið fyrir dómstólum borið saman við 78,9% elsta aldurshópsins (50 – 67 ára). Ef litið var til stuðnings við stjórnmálaflokka kom í ljós að 87,9% stuðningsmanna Vinstri grænna og 85,5% stuðningsfólks Samfylkingarinnar voru frekar eða mjög sammála endurupptöku málsins borið saman við 76,3% stuðningsfólks Framsóknarflokksins og 73,7% Sjálfstæðismanna.
Niðurstöðurnar í heild:
|