MMR // Markaðsrannsóknir, þjónusturannsóknir, spurningavagn, vinnustaðagreining

Færri ánægðir með veðrið Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 07. september 2011 12:33

rigningMMR kannaði ánægju fólks með lífið og tilveruna. Íslendingar virðast enn sem fyrr almennt ánægðir með sumarfríið sitt, vinnuna sína og nágranna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 91,0% ánægð með nágranna sína, 90,2% sögðust ánægð með sumarfríið sitt og  89,9% sögðust ánægð með vinnuna sína. Breytingarnar, frá fyrri könnun MMR  í ágúst 2010, eru því ekki miklar. Þá sögðust 92,9% þeirra sem tóku afstöðu vera ánægðir með nágrannana sína, 91,9% voru ánægð með sumarfríið sitt og 91,2% voru ánægð með vinnuna sína.

Veðrið í sumar hefur þó ekki vakið sömu lukku og veðrið í fyrra því 62,0% þeirra sem tóku afstöðu núna sögðust vera ánægðir með það borið saman við 94,7% fyrir ári síðan. Sömu sögu er að segja af Borgarstjóranum í Reykjavík, núna sögðust 61,7% þeirra sem tóku afstöðu vera óánægð með hann en í ágúst 2010 voru það einungis 22,4% aðspurðra.

1108_anagja_01

Niðurstöðurnar í heild:
1108_tilkynning_anaegja.pdf

1108_sertafla_Borgarstjorinn.pdf

 
Borði
Þú ert hér  : Heim Fréttir Birtar niðurstöður Færri ánægðir með veðrið
Markaðs og miðlarannsóknir ehf
Laugavegi 174
105 Reykjavík
Sími 578 5600
Fax 578 5619
members-mark