MMR // Markaðsrannsóknir, þjónusturannsóknir, spurningavagn, vinnustaðagreining

Meirihluti styður aukið eftirlit við Schengen landamærin Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 26. júlí 2011 11:43

shengen_map_smallMMR kannaði afstöðu landsmanna til aukins landamæraeftirlits með ferðamönnum á leið til Íslands frá aðildarríkjum Schengen samstarfsins. Af þeim sem tóku afstöðu voru um helmingur, eða 49,0%, sem sögðust mjög fylgjandi auknu landamæraeftirliti og 34,5% sögðust frekar fylgjandi auknu landamæraeftirliti. Að samanlögðu voru þannig 83,5% þeirra sem tóku afstöðu til spurningarinnar sem sögðust annað hvort mjög eða frekar fylgjandi auknu landamæraeftirliti með ferðamönnum á leið til Íslands frá aðildarríkjum Schengen samstarfsins en 16,5% sögðust því andvíg.

Stuðningur við aukið landamæraeftirlit reyndist nokkuð afgerandi óháð aðstæðum og stjórnmálaskoðunum svarenda. Minnstur reyndist stuðningurinn meðal stuðningsfólks Samfylkingarinnar. En 71,2% þeirra sem tóku afstöðu og sögðust jafnframt styðja Samfylkinguna kváðust styðja aukið landamæraeftirlit með ferðamönnum á leið til Íslands frá aðildarríkjum Schengen samstarfsins.

1107_schengen_01

 

1107_schengen_02

Niðurstöðurnar í heild:
1107_tilkynning_schengen.pdf

 
Borði
Þú ert hér  : Heim Fréttir Birtar niðurstöður Meirihluti styður aukið eftirlit við Schengen landamærin
Markaðs og miðlarannsóknir ehf
Laugavegi 174
105 Reykjavík
Sími 578 5600
Fax 578 5619
members-mark