| 66% andvíg málshöfðun gegn Geir H. Haarde fyrir landsdómi. |
|
| Miðvikudagur, 22. júní 2011 10:29 | |||
|
Mikill munur reyndist á afstöðu fólks eftir því hvar það stendur í stjórnmálum. Andstaðan reyndist mest á meðal Sjálfstæðismanna, en 91,7% þeirra sem tóku afstöðu og myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ef kosið yrði í dag, sögðust frekar eða mjög andvígir því að höfðað hefði verið sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi oddvita Sjálfstæðisflokksins. Aftur á móti voru 73,4% þeirra sem tóku afstöðu og myndu kjósa Vinstri-græna, ef gengið væri til kosninga í dag, fylgjandi því að höfðað hafði verið sakamál gegn Geir H. Haarde. Niðurstöður könnunarinnar sýna mikla breytingu á afstöðu almennings frá því skömmu fyrir ákvörðun Alþingis um að lögsækja Geir H. Haarde í september 2010. Í könnun MMR sem birt var þann 17. september 2010 voru yfir 60% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðust fylgjandi því að höfða bæri sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi ráðherrunum Árna M. Matthiesen (66,3%), Geir H. Haarde (64,2%) og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur (60,4%). Nokkuð færri eða 51,8% sögðust þá fylgjandi því að höfða bæri sakamál fyrir landsdómi gegn Björgvin G. Sigurðssyni fyrrverandi viðskiptaráðherra.
Niðurstöðurnar í heild:
|