MMR // Markaðsrannsóknir, þjónusturannsóknir, spurningavagn, vinnustaðagreining

Meirihluti andvígur mjólkursektum Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 08. september 2010 13:17

Meirihluti svarenda eða 84,8 % eru andvíg því að mjólkursamlög sem taka á móti mjólk umfram kvóta eða greiðslumark séu beitt fjársektum, 15,2% eru aftur á móti fylgjandi því.

Þeir sem búa á landsbyggðinni eru hlynntari því að mjólkursamlög sem taka á móti mjólk umfram kvóta eða greiðslumark séu beitt fjársektum heldur en þeir sem eiga heima á höfuðborgarsvæðinu. 20,1% þeirra sem búa á landsbyggðinni eru frekar eða mjög fylgjandi því að mjólkursamlög séu beitt fjársektum borið saman við 11,9% þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu.

Þegar svörin eru skoðuð eftir stjórnmálaskoðun kemur í ljós að þeir sem myndu kjósa Framsóknarflokkinn og Vinstrihreyfinguna-grænt framboð, ef gengið væri til kosninga nú, eru hlynntari því að mjólkursamlög sem taka á móti mjólk umfram greiðslumark séu beitt fjársektum en þeir sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna. Rúm 26% eða 26,2% þeirra sem segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn og 23,3% þeirra sem myndu kjósa Vinstri-græna eru frekar eða mjög fylgjandi því að beita mjólkursamlög fjársektum borið saman við 12,3% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins og 11,2% Samfylkingarfólks.

Niðurstöðurnar í heild:

1008_tilkynning_mjolkurkvoti.pdf

 
Borði
Þú ert hér  : Heim Fréttir Birtar niðurstöður Meirihluti andvígur mjólkursektum
Markaðs og miðlarannsóknir ehf
Laugavegi 174
105 Reykjavík
Sími 578 5600
Fax 578 5619
members-mark