| Ánægju Íslendinga fá takmörk sett |
|
| Fimmtudagur, 02. september 2010 10:13 | |||
|
Mikil ánægja ríkir meðal Íslendinga samkvæmt könnun MMR á ánægju almennings. Landsmenn eru almennt ánægðir með sumarfríið sitt nágranna sína, vinnuna og veðrið í sumar - en yfir 90% þeirra sem tóku afstöðu í könnun MMR um ánægju almennings sögðust ánægð með þessi atriði í lífi sínu. Þá voru tæp 78% sem kváðust ánægð með Borgarstjórann í Reykjavík. Hins vegar sögðust tveir þriðju hlutar svarenda vera frekar eða mjög óánægðir með að Spaugstofan sé hætt á dagskrá Ríkisútvarpsins – en þeir geta þá væntanlega tekið gleði sína aftur þar sem kunngert hefur verið að Spaugstofan heldur áfram á Stöð2. ATHUGASEMD:
|